-->

Skilmálar

Afhending er án endurgjalds ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira.

Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og snidugargjafir.is

 

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er Sniðugar gjafir sem er eingöngu netverslun og ekki með aðstöðu til að taka á móti viðskiptavinum.

VERÐ

Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.



GREIÐSLUMÁTAR

Á Sniðugar Gjafir er boðið er upp á að greiða með greiðslukorti.

Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa og Eurocard/Mastercardí gegnum örugga greiðslugáttir á Íslandi. Við bjóðum einnig uppá Netgíró.

SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLURÉTTUR

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:

• Varan skal vera ónotuð.

• Vara skal vera í söluhæfu ástandi.

• Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum og skulu þær vera í söluhæfu ástandi.

• Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.

• 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

Endursendingar skulu gerðar í gegnum sendingaraðila Dropp 

https://dropp.is/voruskil

 

Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

HÖFUNDARÉTTUR OG VÖRUMERKI

Grafík, lógó, myndir og allt efni á www.snidugargjafir.is eru eign Sniðugar Gjafir. og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Sniðugar Gjafir.

 

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.



VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.



HAFA SAMBAND

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið info@snidugargjafir.is ef einhverjar spurningar vakna.